Janúar

Er að verða búinn. Hér sit ég í strætó um daginn og hugsa: “Þetta er merkilegt. Það er vetur og mér er ekki kalt á tánum (mér er nefninlega alveg ofboðslega kalt á tánum á veturna). Það á nú eftir að rætast úr því, janúar og febrúar eru eftir með sín -4° skemmtilegheit.” En nei, janúar er að verða búinn!!!!! Það er bara febrúar eftir með sínar hugsanlegu -4°sem eru ekki líklegar miðað við veturinn sem er að verða búinn. Það er búið að vera stórkostlegt veður í vetur og við hér í birtingardeild Internet-Gests fögnum því gríðarlega og sendum út fagnaðarkveðjur til fátæku barnanna í Breiðholti með tilheyrandi pompi og prakt.
En að öðru. Eins og fram kom í fyrri skrifum þá tók Einar sig til og snaraði í eitt stk sælkeraklúbbinn Jónas. Hann fær einstakar kveðjur fyrir framlag sitt til heimsins. Hann fær samt örugglega ekki kveðjur frá Hirti. Þannig liggur nefninlega í málinu að Einari datt í hug að elda mexíkanska súpu með kjúklingi og hektara af chili pipar. Þar sem að Hjörtur getur ekki lagt sér til munns neinn sterkari mat en vatnsglas þá var að sjálfsögðu fjandinn laus. Ég sjálfur fékk reyndar snert af heilablæðingu við að borða þessa súpu þar sem hún var sirka 400° á fahrenheit og gæti hæglega séð Hveragerði fyrir orku í 18 ár. Við komum að Hirti á þvottaherbergisgólfinu, þar sem hann lá í fósturstellingunni, söng Erykah Badu og ranghvolfdi í sér augunum. Einar sótti þá dýrara smyrslið sitt og fór með ljóð á meðan hann hlúði að Hirti eins og vængbrotnum fugli. Hjartnæm stund, verð ég að segja.
Svo er maður sem fær verðlaun vikunnar. Um daginn var stormur. Lögreglan var búin að biðja fólk um að vera heima hjá sér vegna hættu við að fjúka til Garðabæjar og það vill enginn. Ég og Rósa vísuðum þessari bón Lögreglunnar til föðurhúsanna og fórum í bíó. Sáum Sherlock Holmes sem var ágætis skemmtun og fær meðmæli undirritaðs. Á leiðinni heim úr bíóinu var skyggni 0 metrar, grenjandi rigning og svínslegt rok. Allt í einu öskrar Rósa eins og hún hafi vaknað á Breiðabliks leik og ég hamraði á bremsuna hraðar en Chuck Norris hugsar. Þá er einhver bölvaður asni að HJÓLA á móti umferð í þessu ansvítans veðri og var þá staddur svona meter fyrir framan bílinn með aumasta blikkljós sem ég hef séð til að vekja á sér athygli.
Þessi maður fær klárlega verðlaun fyrir að vera maður vikunnar og þau eru ekki af verri endanum, þáttaka á þingflokksfundi Borgarahreyfingarinnar! Til hamingju, hjólandi maður!
Segi þetta gott í bili, er að hugsa nýja könnun, ef það er eitthvert brennandi málefni þá smellið því í komment!

4 Responses to “Janúar”

  1. Hjörtur says:

    Við fátæku börnin í breiðholti þökkum góðar kveðjur

  2. Einar Haralds says:

    hahaha djöfull var gaman að þessum Jónas, ég mun reyna haga mér betur næst strákar mínir!

  3. Einar Haralds says:

    vááá hvaða vitleysingar eru að velja Sigurrós, grunar að Steini Orri hafi valið þá í átta mismunandi tölvum…

  4. Ásgeir Long says:

    Hahhaha….snilld! ég vill smakka þessa súpu!

Leave a Reply